Clear album Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ingunn H.   
Þriðjudagur, 31. mars 2009 12:15

 

 

Það er alveg á tæru að tæru glæru albúmin er að slá í gegn í skrappinu þessa dagana 

 

Þessi glæru albúm hafa endalausa möguleika á að reyna á listamanninn í þér.
Margir skrapparar hafa algerlega fallið fyrir þessum margra vídda albúmum.

 

Ólíkt því að skrappa á pappír, síðu fyrir síðu, þá þarftu að hugsa um albúmið í heild alveg frá byrjun.

 

Þetta þarf að muna í hvert sinn sem þú situr skraut eða annað á glæra síðu. Þú munt vilja setja skrautið þitt þannig að það sjáist í gegnum albúmið , jafnvel frá öftustu síðu.

 

Eitt af því fyrsta sem þarf að hafa í huga þegar er gerð glær albúm er að fela límið svo það sjáist ekki frá hinni hliðinni.

Ef þú notar tvöfaldan pappír eða munstraðan báðu megin, þá getur þú hagrætt og sett í lög til að fela lím frá hinni hliðinni. .

Síðan er hægt að fá lím sem þorna svo til glær og ósjáanleg eins og Zig Dry Paper Glue.3. Glær albúm munu láta þig prófa fullt af nýjum hlutum . Þegar þú setur mynd á glæra síðu vertu þá viss um hvað þú ætlar að hafa hinum megin.

Kannski mynd í sömu stærð, eða nota bakið á myndinni sem textabox. Flott er að setja stórt blóm á bakvið, þá gægjist blómið fram undan myndinni, og er flott báðum megin.


Glær albúm eru eldfim svo farðu mjöög varlega þegar þú embossat.


Gakktu úr skugga um að nota slétt undirlag og leyfðu verkinu að kólna vel áður en þú heldur áfram.5. Notaðu Rub-on, það er fallegt, og sést báðum megin án þess að þurfa lím.
Þegar þú notar Rub-on eða stimpla staðsettu það þá þannig að það njóti sín frá báðum hliðum.

 

Notaðu Stazon blek. Það þornar hratt og rennur ekki til.
Þú getur líka notaði málningu.

Pennar sem virka vel eru Sharpies og American Craft Slick Writer.

 

Þú getur notað kósu, grommet eða brads með því að gera göt þar sem þig listir.
Notaðu Crop-a-dile töngina, hún fer í gegnum allt.


Þú getur líka notað hana til að gera göt og “sauma” með því að þræða borða í gegnum þau.

Hlutir sem er gott að nota í glær albúm.
Rub on
Akrýl málning/gler málning
Bling í öllum stærðum og gerðum
Límmiða
Stimpla
Heidi Swapp maska..
Stazon blek.
Emboss duft og pigment blek, það virkar en farðu varlega.
Permanent Pennar
Glærur
Crop-a-dile
Glimmer
Efni
Sticles
Chipboard
Blóm
Borðar

Tekið af síðunni  http://www.bellaonline.com/articles/art55417.asp

 

 

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 31. mars 2009 12:20
 

Maraþon síðurnar

gunna.jpg